Infiniti Bloggið

InfinitI-Band

12.03.2007 07:24:38 / klaki

InfinitI á Voice 98,7

jæja krakkar og krumpaðir, nú er With You komið í spilun á útvarpsstöðinni Voice 98,7 á Akureyri og viljum við hvetja alla til þess að styðja okkur með því að hringja inn á þessa ágætu útvarpsstöð í síma 461-5987 og biðja um lagið! Það hefur verið spilað reglulega en við viljum gera enn betur, þannig að endilega hjálpið okkur að miðla gleðinni og halda InfinitI lestinni gangandi. Einfalt, hringjið í síma fjórir sex fimmtán níu átta sjö og málið er dautt.

InfinitI unplugged er svo að fara að spila á Kaffi Akureyri á fimmtudaginn 15. mars, með frumsamin lög í bland við "cover" lög, og við það er um að gera að láta sjá sig þar og fá sér kannski einn öl með.
Við spilum frá 22:30 til 01:00


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 17:55:52 / skaufi

hellú loksins nýtt blog !!!

   InfinitI er að fara að spila accustic á kaffi akureyri fimmtudagin 22.2.07 semsagt á morgum.

Andrés og ísak að spila . vonandi sjáum við sem flesta :D vi sess bæbæ

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 16:08:49 / addi

Góðan dagin

loksins loksins er infiniti komin með plötusamning!!!!
það ótrúlega gerðist að Einar Bárðarson heyrði With you og vildi bara gera samning við okkur.. það felst fyrst og fremst í að hita upp fyrir Nælon og aðrar sveitir..fylgist með..


allaveganna erum við aftur orðnir fullskipuð hljomsveit, Bjössi er á gítar núna ásamt ísaki og svo kom Einar kærasti systur Andrésar á bassan i bili allaveganna.. Þannig að við erum farnir að æfa á fullu og allt gengur bara vel. nema skúrinn okkar i Finstvallagötu hann lekur...!! annars er lítið að frétta af okkur nema bara gott og afsakið hvað er langt síðan bloggað var síðast.. nu fer etta eitthvað að skána.. enn bless i bili og fylgisti endilega með..       svo eg vitni Ísak;

Fleira er ekki i þættinum að þessu sinni
veriði sæl

:

» 20 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 06:49:21 / klaki

Þetta er helst í fréttum..

Það er nú orðið frekar langt síðan eitthvað var að frétta úr herbúðum InfinitI, enda efast ég um að einhver skoði þessa síðu lengur.. hehe :D En við erum komnir með húsnæði og erum búnir að vera að vinna í því seinustu, jaa.. vikur eða mánuði.. Þurfti dálítið að lappa uppá það ;)
Núna erum við sem sagt að koma okkur fyrir þar, flytja græjurnar þangað og svona, þannig að það styttist í það að æfingar hefjist á fullu aftur! Það er nýtt efni í vinnslu og eigum við eftir að leika okkur eitthvað með það og sjá hvort við náum ekki einhverjum öflugum lögum útúr því..

Fleira er ekki í þættinum að sinni, veriði sæl..

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 07:32:17 / addi

jæja ekkert að gerast

'eg ætlaðu nu ekki að skrifa um neitt sérstakt. bara við erum að bíða eftir húsnæðinu og svona og eg ætla nota tækifærið og auglýsa bílinn minn til sölu á svona 110 þúsund verð að losna við hann er að fá mér annan.. enn seg vona bara að infiniti geti farið að æfa fljótlega aftur því mar er orðin nett pirraður að geta ekkert æft

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 11:52:25 / skaufi

Jónsmessa

góðan dag !!!!

InfinitI er að spila í kjarna ájóns messu órafmagnað og rafmagnað
þetta stendur allt í dagskráni so þarf ekki að segja meir um það
þessa dagana erum við búnir að vera hálf stop og leita okkur af húsnæði !!
það er leist mál núna ;) svo við erum bara í þokkalegum málum .

sjáumst í kjarna á Föstudagin :D

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.06.2006 14:57:36 / klaki

InfinitI á torginu í kvöld klukkan 20:00..!!

InfinitI munu spila í kvöld, 17. Júní á sviðinu niðrá torgi. Við stígum á svið klukkan rétt rúmlega 8 og hvetjum alla til að láta sjá sig :D
Áfengi æskilegt.. :haha:

Lagalisti:
Undir Hundruðum Járnaðra Nagla
Love Me
With You
My Destiny
 

Mjáww..8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.06.2006 19:02:20 / addi

hæhæ allir

Jæja gott fólk, þá eru andrés og ísak loksins komnir heim og var víst mjög gaman hja þeim báðum að mér skilst. En eg finn á mér að þeir eigi eftir að blogga um þetta hehe.. annars ætlaði eg bara að láta vita að við erum að spila á 17 juní niðri í bæ þar sem stóra sviðið hefur alltaf verið. Allaveganna eigum við að byrja um 8 og vera að i svona u.þ.b 30 mín, við látum vita ef þetta breytist eitthvað og eg minni á að þetta eru fyrstu tónleikar Bjössa nýja bassaleikarans okkar þannig að endilega flestir að mæta og sýna okkur stuðning og bara hafa gaman;) Svo verður náttlega feitt djamm eftirá, en þangað ti næst bæbæ Addi

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 18:45:34 / klaki

Svona er staðan í dag

Það er ekki mikið að ske í herbúðum Infiniti þessa dagana, Andrés er að baða sig í sólinni og bjórnum á Tenerife, og Ísak á leiðinni til london á laugardaginn að sjá Alter Bridge ;)
Samt sem áður verðum við klárir í slaginn fyrir 17. júní, með Bjössalinginn okkar  plokkandi bassann auðvita ;)

Eins og Andrés sagði í síðasta bloggi, þá stígum við á svið kl. 20:00, eins og staðan er í dag, og það ætti ekki að þurfa að taka það fram að auðvita eiga allir að mæta:) sýna sig og sjá aðra ;)

Svo eftir það þá förum við að negla niður dagsetningar á framtíðar gigg!

sakki...

» 3 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 14:35:08 / skaufi

17. Júní ;P

    Halllo Hallo .... á 17 júní á akureyri verða InfinitI á stóra sviðinu í bænum kl: 20:00 eins ogplanið er í dag tímin gæti breyst, en það verður stuð að sjá alla sem fíla Tónlistina í bænum og skilda að láta í sér heyra. mynna einnig á það að þetta verða fyrstu tóleikar bjössa :P og við aldrei verið betri . við fáum hálftíma prógram býst ég við svo þá er það barahvað á að spila :D
Einhverjar hugmyndir? =D

» 5 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 00:04:00 / addi

bara segja fólki WHY....??

Sko Það var svo margt sem að kom upp hjá InfinitI, t.d dæmis þá vorum við búnir að tala við bigga um sviðsframkomu,sem hann reyndar var að laga. Enn svo bara líka t.d að það var alltaf eitthva óþarfi tuð útaf einhverju...æfingar voru orðnar leiðinlegar og mar nennti varla að æfa.. svo voru líka ástæður sem að ég ætla ekki að nefna hérna.. Við vorum bara orðnir þreyttir á að hafa æfingarnar svona og það þurfti eitthvað að breytast.. ,meina hvað viljiði vita.. viljiði vita að við vorum komnir með ógeð og hljomsveitin var að fara að leysast upp....? Eg var t.d líka að fara hætta ef eitthvað lagaðist ekki...Meina fyrst og fremst þurftu margir hlutir að breytast. T.d hvernig biggi var i framkomu og hvernig hann hagaði sér gangvart okkur og hljomsveitinni.. ekki fara að segja ja enn þið voruð leiðinlegir við hann.. það er ekki umræðu efnið hérna.. eg er bara að segja þetta því eg er orðnn nokk nett þreyttur á að fólk sé að spurja.. samt ekkert ílla meint.. biggi er góður tónlistarmaður og vinur líka.. enn Hann var fyrst og fremst rekin útaf hvernig hann var búinn að láta og hvernig við vorum orðnir þreyttur á “hvernig” hann lét.. Eg vill náttlega ekki særa bigga enn hann skilur þetta og eg tel það allveg nóg að hann skilji þetta því að ég veit að hann gerir það.. Þannig ef að þetta er ekki nóg þá getiði bara talað við bigga og spurt hann eða tala við okkur.. enn hvað InfinitI varðar þá er nýr kafli að byrja með nýjum markmiðum og vonandi gengur það allt vel. Bigga verður saknað enn stundum er bara nauðsynlegt að gera svona hluti.. eins og vitur maður sagði. Engin er ómissandi. Eg vil bara segja þetta til að fólk geti aðeins fattað hvað gekk á og skilið kannski aðeins meira afhverju þessi ákvörðun var tekinn. Enn og aftur segji eg að það var engin óvinátta milli okkar Bigga þegar við skildum við hann.. Bara vill að fólk taki tillit til þessa og leyfi okkur og bigga að halda áfram í því sem að við erum að gera..

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 12:55:29 / skaufi

19. maí

Svona til að forðast allan miskiling eru ekki tónleikar 19. maí við erum ekki tilbúnir. búnir að taka tvær æfingar með bjössa og gengur það bara með príði. hlakka til að spila næst . næsta gig verður bara 17. júní :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 20:10:15 / biggi

Síðasta bloggið mitt...

    hæhæ, eins og fólk hefur nú heyrt og sumir ekki er búið að reka mig úr Infiniti... ég vildi bara henda hingað inn síðasta blogginu og létta af mér ýmislegu... ég vil þakka öllum sem fíluðu mig í þessari hljómsveit sérstaklega adda, ísaki og andrési..þetta var sannur draumur að fá að spila með svona hæfileikaríkum strákum. tónlistin hjá infiniti, alternative-rokk er bara það besta rokk semgerist og þessi hljómsveit án efa eins sú allra besta í þessari tónlist í heimi að mínu mati, veit um engar sem eru með jafn góð og þétt lög nema kannski alter bridge en infiniti eru þó betri.. þessir strákar eiga eftir að vefja heiminn höndum sér eftir ekki alllangann tíma og vil ég biðja þa sem þekkja þá að syna þeim virðingu í hámarki því að þeir eiga eftir að verða svo stórir, frægir og miklir! ég óska bjössa til hamingju með heiðurinn að fá að taka þátt í þessu verkefni..því miður fattaði ég aldrei heiðurinn og bara hversu mikil forréttindi þegar að ég stóð á sviði með þessum strákum, spilaði þessi lög og var partur af infiniti..ég vil bara þakka öllum sem hlustuðu mig og nutu mín...ég vil sérstaklega þakka strákunum fyrir frábært samstarf og endalaus skemmtilegheit... ég elska ykkur! ég vil þakka foreldrum mínum, skyldmennum og vinum mínum fyrir ógeðslega mikinn stuðning á meðan þessu stóð en kannski er best núna að taka það til sín sem er sagt við mann, og eitt sinn var mér sagt þegar að ég var í 8 bekk. en það var hinn ágæti bjarni siguróli í Tony the pony sem fór með eftirfarandi setningu "biggi hefur aldrei verið það og verður aldrei tónlistarmaður fyrir fimm aura!" það er af sjálfsögðu rétt hjjá honum þegar að ég sé hvernig ég er buinn að láta við strákana í infiniti og alla vini okkar...ég veit nákvæmlega hvað ég gerði og hvað eg gerði ekki... ég var ekki góður vinur né samstarfmaður í tónlist, ég var með mikinn pirring og leiðindi endalaust og bið ég ALLA sem urðu einhverntimann fyrir því innilegrar fyrirgefningar.! ég skil alleg að öllum finnst geðveikt asnalegt að ég se að skrifa þetta herna en þetta er mjög dramatískur og þýðingarmikill tími fyrir mig og vil ég að allir fái að vita hvernig mín hlið á þessu er...svo finnst mér einnig að strakarnir ættu að seigja hvað veldur þessu öllu, en það er af sjálfsögðu uppundir þeim komið að seigja það sem þeir vilja, en mér finnst að fólk eigi skilið að fá að vita þegar að eitthvað svona gerist. ég vil bara þakka fyrir mig og þetta var bara geðveikur tími, ég kynntist endalaust af yndislegu fólki og bara takk fyrir allt...Ég elska ykkur strákar mínir, Arnar, Ísak og Andrés, geriði heiminn brjálaðann og gangi ykkur vel! takk fyrir mig, kv. Biggi!

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 19:06:49 / addi

jæja gott fólk svona er málip

Það sem fór á milli hljómsveitarinnar og bigga er okkar mál og það kemur i rauninni engum við nema okkur..;) það eru kannski einhverjir sem vita það og þá er það bara gott fyrir þá,eg ætla ekki auglýsa það hvað fór okkur á milli  enn það sem að ég get sagt ykkur er að Bjössi er jú á bassan núna;) svo er bara að bíða og sjá hvort sumarið verður ekki InfinitI til gæfu;)


Addi

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 14:12:58 / addi

Kannski komin tími til að segja fólki að...

jæja okkar næsta gigg hefur verið staðfest og það er á Kránni eða i stóra salnum föstudaginn 19. mai, og það er frítt inn,og 18 ára inn reikna eg með;) enn svo er annað mál sem að mér finnst að flestir ættu bara að vita og það er að Biggi bassaleikari er farinn suður að vinna og óvíst hvenær búast megi við komu hans aftur til Akureyrar. Þannig á meðan fengum við Bjössa fyrrverandi "Mistur og Aten " gítarleikara til að "joina" Infiniti á bassa þangað til Biggi kemur aftur;) haft var samband við Bjössa og hann tók vel í þetta, taka skal þó fram að það var talað fyrst við Bigga, bara láta það koma fram til að fyrirbyggja eitthvað vesen eða misskilning. Þannig að næsta vikur fara i að koma Bjössa inní lögin okkar og svo bara æfa á fullu;) Vildi bara láta fólk vita hvað er að gerast svo að það frétt etta ekki útí bæ. Enn eg segji þá bara bless i bili og haldiði áfram að fylgjast með okkur

Addi Infiniti

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Leitarbox